
Stjórn Nordiska Afasirådet kom saman í Osló um miðjan mánuðinn og sátu þeir Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA og Axel Jespersen fulltrúi félagsins um málstol. Stjórnarfundinn sátu auk þeirra Bruno Christiansen (Danmörk) Ellen Borge, Lisbet Eide og Marianne Brodin (Noregur) Lars Berge-Kleber og Ann Ander (Svíþjóð) og Tom Anthoni (Finnland). Voru fundarmenn sammála um að fjölga mætti talmeinafræðingum í hverju landi fyrir sig, þar sem þörfin á þeim væru álíka mikil og endurhæfing annarra afleiðinga slags. Það kom einnig fram að málstolssjúklingar hefðu byrjað að mynda félög slagsjúklinga á síðustu öld og væru því meginuppistaða félaganna.