Á ráðstefnu SAFE í Warsaw, Póllandi, sem þeir Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA, Baldur Kristjánsson, stjórnarmaður félagsins og Þór Garðar Þórarinsson, starfsmaður Velferðarráðuneytisins sóttu komu fram ýmsar nýungar, sem þeir voru sammála um að myndu gagnast okkur Íslendingum vel. Margir fyrirlestrar voru haldnir og margar fyrirspurnir bornar fram er veittu fundarmönnum mikla framtíðarsýn, er samræmdist stefnu íslenskra stjórnvalda í velferðarmálum. Verður fjallað meira um ráðstefnuna seinna meir. Höfð voru góð samtöl við þátttkendur, m.a. ítarleg samræða við Jon Barric, forseta SAFE, um framtíðarsýn samtakanna í Evrópu á komandi tímum. Þóttu mönnum mikið til koma kynning hans á henni á ráðstefnunni.