Merkur fundur um slagið var á Akureyri um helgina, er Páll Árdal forsvarsmaður félagins á Akureyri setti, nánar i Stássinu, Greifanum við Glerárgötu, sunnudaginn 22. maí s.l.. Þau Velgerður Sverrisdóttir, fyrrum ráðherra og alþingismaður, Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA og Friðriki Vagn Guðjónsson, endurhæfingalæknir á Kristnesi, tóku til máls og greindu frá reynslu sinni af áfallinu. Á þessum fundi kom margt athyglisvert fram, m.a. hvað frásögur þeirra um er áfallið reið fyrir voru keimlíkar og hvernig upplifun þeirra var svipuð þegar upp var staðið. Töldu fundarmenn brýnt væri að almenningur gerði sér grein fyrir skynsamlegum viðbrögðum þegar einhver kennir sér slags.
Þá kynnti Þórir væntanlegt APP með innbyggðum neyðarhnappi í Neyðarlínuna 112 fyrir þá er vilja fullvissa sig um líðan sína ef þeir kenna sér slags. Þá voru sýndar kynningarmyndbönd félagsins er vöktu athygli. Á meðan fundi stóð gæddu menn sér á súpu og salati er félagið bauð uppá og héldu fundarmenn heim ánægðir með daginn.