HEILAHEILLA er aðili að SAFE (Stroke Alliance For Europe) og stendur til boða að vera þátttakandi í rannsóknarverkefninu HORIZON 2020 á vegum samtakanna og Evrópusambandsins, sem fjármagnar ýmsa þætti í framkvæmdinni.
Hefur félagið biðlað til opinberra aðila um að vera því innanhandar, sérstaklega þegar komið er að áætluninni HORIZION 2020. Framlag Íslands yrði bundið niðurstöðum rannsókna er varðar slagið, heilablóðfallið og nýungar í meðhöndlun á bráðastigi. Vegna smæðar þjóðar okkar er ekki úr marktækum tölum að ráða, en við getum þó leitt líkur að ýmsum tölum, er fagaðilar hafa gert könnun á á síðustu árum hér á landi. Þá stendur félaginu einnig til boða að vera þátttakandi í fleirum verkefnum á vegum SAFE, sem er í samstarfi við marga aðila sem eru reiðubúnir að annast fjárhagshlið mála, er varðar þýðingar, útgáfu o.fl.. Verður fróðlegt í framtíðinni að fylgast með niðurstöðum rannsókna, ef Ísland getur verið aðili í þeim.
Slóð |
|
Sækja skjalið í *.ppt formati hér