Þau Lilja Stefánsdóttir, húsmóðir; RAX (Ragnar Guðni Axelsson) ljósmyndari og Þórir Steingrímsson formaður HEILAHEILLA voru í viðtalsþætti hjá Sirrý á Hringbrautinni 27. júlí 2016. Fylgdu þau úr hlaði nýja heila-appinu, öryggistæki fyrir þá er kenna sér slags, beintengt við Neyðarlínuna 112. Þessu appi er ætlað ókeypis í alla snjallsíma og getur hver sem er sótt það í gegn um sína veitu, í APPLESTORE, GOOGLEPLAY o.s.frv.. Hver notandi getur opnað sína veitu, ýtt á leitina (stækkunarglerið), slegið inn “Heilaheill” og þá birtist appið. Þá birtist gluggi þar sem er óskað eftir kennitölu og síðan birtist orðið SLAG. Undir hverjum staf er lýsing á fyrstu einkennum slags og getur hver og einn fræðst um einkennin. Þegar notandinn er fullviss um að hann, eða honum nákominn, sé að fá slag sendist kennitalan sjálfvirkt í SMS (textaboðum) í Neyðarlínuna 112. Þá sér starfsmaður Neyðarmóttökunnar hver sendir og vegna hvers! Hafi notandinn ekki burði að tala eða gera grein fyrirhvar hann er, þá getur Neyðarlínan sett í gang leitun að snjallsímanum með nokkurri nákvæmni og leiðbeint bráðaliðum. Þetta eykur á öryggi hvers og eins er býr yfir þessari tækni. Eru allir hvattir til að nýta sér þetta og deila því með öðrum!