Formaður HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson, fór á vinnufund „slagfélaganna“ á norðurlöndunum í Osló dags.06.06.2011, þar sem var tekin var upp umræða um frekara samstarf með norðurlandaþjóðunum um slagið. Þarna mættu fulltrúar Dana, Norðmanna og Íslendinga, í húsakynnum Bayer Healtth Care er boðaði og bauð til fundarins, að undirlagi og í samráði við Arne Hagan, formanns félagsins í Noregi.
Kim Hannisdal, fulltrúi fyrirtækisins, kvaðst vera PR-fulltrúi þess á Norðurlöndum og markmiðið væri fyrst og fremst að leiða sjúklingafélög í þessum löndum saman, með sína norrænu velferðarpólitík. Var einhugur um það á fundinum að Norðurlöndin kæmu sér saman um sameiginleg markmið, – sem er að beina „lyfjarisunum“ [er hafa slæma ímynd nú um sakir] inn á það að hlusta meira á þau samtök er standa framarlega í umræðunni um fyrirbyggjandi aðgerðir. Á fundinum flutti David Russel, prófessor, erindi um tengsl á milli gáttatifs og slags. Hann taldi líkurnar á dauðsföllum slagsjúklinga vegna þessarar tengingar hafa aukist til muna, allt að 50%, á undanförnum árum og hvatti sjúklingafélgin [sérstaklega norðurlöndin] að tala einum rómi um þessa hættu. Var ákveðið að sameinast um þessa hugmyndafræði, – þar sem lögð var áherslu á það að slík umræða myndi að hjálpa sjálfum okkur mikið. Fulltrúi Bayer Healtth Care sagði að ef löndunum tækis að vera með sameiginlega vinnu í þessu sambandi, þá væru lyfjafyrirtækin tilbúin og að hans frirtæki myndi gera samning við þau. Þá kom skýrt fram að engu fyrirtæki yrði gert eitthvað hærra undir höfi en öðru, – það yrði t.d. aldrei talað um lyf o.s.frv.! Horfðu hinar þjóðirnar mikið til þess að Íslendingar tækjum þátt í þessari undirbúningsvinnu.