Ferðalög framundan hjá HEILAHEILL

Nú fer sumarið í hönd og hafa forsvarsmenn HEILAHEILLA í samráði við forsvarsmenn Hjartaheilla, í Reykjavík annarsvegar og á Akureyri hinsvegar, skipulagt ódýrar eins dags ferðir í rútum, um suðurland 18. júní til Vestmannaeyjar um Landeyjahöfn og 25. júní á Mánárbakka, Húsavík og Mývatnssveit fyrir norðan.  Þessar sumarferðir félagsins hafa gefið góða raun og góðar veitingar og sýningar hafa verið í boði, auk þess sem fólkið skemmtir sér konunglega á leiðinni.  Búist er við meiri þátttöku í ár, þar sem félögum Hjartaheilla um allt land er einnig boðið að vera þátttakendur.  Verður frekari grein gerð fyrir ferðunum á heimasíðum og netfangalistum félaganna, þar sem upplýsingar fást um ferðaáætlun og verð.  Þeir sem hafa áhuga geta skráið sig með því að smella hér eða veljið hnappinn „Sumarferðir“ á heimasíðunni.

Hægt er að sjá ljósmyndir og myndbönd af fyrri ferðum HEILAHEILLA hér!

Sumarferð 2006  Rvík              

Sumarferð 2007  Rvík            

Sumarferð 2008  Rvík            Myndband

Sumarferð 2009  Rvík            Myndband

Sumarferð 2010  Rvík            Myndband

Sumarferð 2010  Akureyri

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur