Nú fer sumarið í hönd og hafa forsvarsmenn HEILAHEILLA í samráði við forsvarsmenn Hjartaheilla, í Reykjavík annarsvegar og á Akureyri hinsvegar, skipulagt ódýrar eins dags ferðir í rútum, um suðurland 18. júní til Vestmannaeyjar um Landeyjahöfn og 25. júní á Mánárbakka, Húsavík og Mývatnssveit fyrir norðan. Þessar sumarferðir félagsins hafa gefið góða raun og góðar veitingar og sýningar hafa verið í boði, auk þess sem fólkið skemmtir sér konunglega á leiðinni. Búist er við meiri þátttöku í ár, þar sem félögum Hjartaheilla um allt land er einnig boðið að vera þátttakendur. Verður frekari grein gerð fyrir ferðunum á heimasíðum og netfangalistum félaganna, þar sem upplýsingar fást um ferðaáætlun og verð. Þeir sem hafa áhuga geta skráið sig með því að smella hér eða veljið hnappinn „Sumarferðir“ á heimasíðunni.
Hægt er að sjá ljósmyndir og myndbönd af fyrri ferðum HEILAHEILLA hér!