TÖKUM TIL MÁLS Í SÓKN!


Nokkrir meðlimir hópastarfsin “
Tökum til máls“, á vegum HEILAHEILLA, fyrir fólk með málstol, stýrt af þeim Þórunni Hönnu Halldórsdóttur og Helgu Thors talmeinafræðingum, fóru á fund í heilbrigð-isráðuneytinu til að ræða stöðu fólks með málstol og brýna þörf fyrir heildræna þjónustu fyrir full-orðna með ákomna máltruflun.  Hafa þær m.a. leitt starf félagsins í samskiptum við systurfélag sitt í Tékklandi og hefur verið góður gerður rómur þar að. Í heilbrigðisráðuneytinu tóku á móti þeim Selma Margrét Reynisdóttir og Hrafnhildur Erlendsdóttir sérfræðingar, en Selma fer m.a. með málefni endurhæfingar og talmeinaþjónustu innan ráðu-neytisins. Fundurinn hófst með því að Þórunn kynnti stuttlega tildrög þess að ráðuneytinu var sent erindi frá hópnum og síðan kynntu allir sig og sögðu stuttlega sína sögu og hvað þeim finnst helst skorta af þjónustu í kerfinu, s.s. aðgengi að félagsráðgjöf og stuðningi við ýmis mál sem snúa að kerfinu, aðgengi að talþjálfun, sálfræðistuðningi, námskeið og fleira. Meginmarkmið fundarins af hálfu hópsins var að þrýsta á að komið verði á fót þjónustustofnun sem beri ábyrgð á heildrænni þjónustu til þeirra sem fengið hafa málstol eftir ákominn heilaskaða (sjá hugarkort sem hópurinn vann í vetur). Tekið var vel á móti hópnum af hendi ráðuneytisins, Selmu og Hrafnhildar, þær hlustuðu vel á það sem hópurinn lagði fram og virtust mjög jákvæðar í garð erindisins. Þá kom fram að erindið hefur snertifleti við önnur mál sem eru á borði ráðuneytisins s.s. útfærslu á talmeinaþjónustu og vinnu við evrópska aðgerðaáætlun tengt slagi SAP-E (Stroke Action Plan for Europe). Hópurinn var hvattur til að halda áfram því góða starfi sem fer fram í laugardagshópi HEILAHEILLATökum til máls” og einnig að halda málinu vakandi og minna reglulega á sig.  Þau Bryndís Bragadóttir, Guðrún Jónsdóttir, Ingthor Hrafnkelsson, Kristján Hafliðason, Sjöfn Eiríksdóttir og Svavari Geirsson mættu einnig á fundinn, sögðu frá sinni reynslu og lögðu sitt af mörkum til að gera málstol sýnilegt og láta rödd málstolsins heyrast!

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur