Fjöldi manns lét mæla sig!

Á hinum árlega alþjóðaslagdegi HEILAHEILLA lét fjöldi manns mæla í sér blóðþrýstinginn í Kringlunni í Reykjavík og á Glerártorgi Akureyri, er læknar og hjúkrunarfræðingar önnuðust og gáfu gestum og gangandi leiðbeiningar um heilsufar sitt.  Þetta átak félagsins er liður í átaki um að vekja almenning til vitundar um áhættuþætti slagsins, m.a. um of háan blóðþrýsting, sem er einn stærsti áhættuþátturinn eða um 40% af þeim er hafa fengið áfallið má rekja til hans!  Hverskonar áverki á heila er ómæld óþægindi fyrir þann sem fyrir áfallinu verður, meiriháttar kostnaður fyrir heilbrigðisyfirvöld og samfélagið, – og fer því miður vaxandi ef ekkert verður að gert.  Líferni hvers og eins ræður miklu. Hægt er að kenna m.a. velferðinni um, þar sem maðurinn kann ekki að meðhöndla neyslu sína og hegðun.  Offita, of hár blóðþrýstingur, ofneysla fíkniefna o.s.frv..  Vitund almennings skiptir höfuðmáli í allri lýðheilsu, – er vegur miklu meira en menn gera sér grein fyrir.

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur