Mætt: Þórir Steingrímsson, formaður; Páll Árdal, gjaldkeri; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Kristín Árdal og Gísli Geirsson varastjórn.
Í upphafi fundar var stungið upp á því að Kristín Árdal yrði ritari þessa fundar, mótatvæðalaust.
- Skýrsla formanns
Þórir Steingrímsson setti fundinn. Lítið hefur gerst innan SAPE sl. mánuð. Í sambandi við SAFE ráðstefnuna 9.-10.mars, þá er hótelið orðið fullt en verið er að ath. með annað hótel. Lena frá Eystlandi er að vinna að prógrammi hjá Sjálfsbjörgu fyrir slagþola. Hún vill vera fulltrúi Heilaheilla. - Fjármál
Fjárhagsstaðan er góð. Sambandið við Markaðsmenn gengur mjög vel. - Aðalfundur 2026.
Ákveðið var að hafa aðalfund 7. mars kl.11.00. Kosning til formanns verður á aðalfundinum. Þórir býður sig fram áfram. - Önnur mál
Páll segir frá mjög góðum fundi sem hann fór á um söfnun félaga ÖBÍ. Mikið rætt þar um söfnunarapp. Fundurinn var ekki tekinn upp en hann mun senda okkur glærurnar til skoðunar. Söfnun hjá Markaðsmönnum byrjaði fyrir ca. ½ mánuði. Þórir mun senda Karli upplýsingar til að uppfæra.
Fundi slitið
Kristín Árdal
