Mánaðarlegur “laugardagsfundur” HEILAHEILLA var haldinn 7. febrúar 2026 í Mannréttindahúsi ÖBÍ við góða þátttöku. Sérstakir gestir fundarins voru þau Leeni Lsaasfeld, margmiðlunarhöfundur, slagþoli, og Þór G. Þórarinsson, sérfræðingur og fv. skrifstofustjóri Félagsmálaráðuneytisins. Formaðurinn Þórir Steingrímsson hóf máls á stöðu félagsins í umræðunni um “líf eftir slag” og greindi frá starfi þeirra sem talsmanna SAP-E hér á landi, sem eru hann, Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugasérfræðingur og Dr. Marianne Elisabeth Klinke, forstöðumaður fræðasviðs í hjúkrun tauga- og taugaendurhæfingasjúklinga, er vinna bæði á tagugadeildinni B2 á Landspítalanum. Fundað hefur verið ásamt dr. Önnu Bryndísi Einarsdóttur yfirlækni taugadeildarinnar; með sérfræðingum heilbrigðisráðuneytisins; ráðherrum og starfsmönnum landlæknisembættisins um innleiðingu Viljayfirlýsingar SAP-E, – en markmiðin eru til að byrja með til ársins 2030:
- að fækka heilaslögum hér á landi um 10%;
- að meðhöndla sjúklinga með heilaslag hér á landi á sérhæfðri bráðaeiningu (stroke unit) um land allt, eins og er á Landspítalanum;
- að hafa landsáætlun um slagið er nær yfir allar heilbrigðisstofnanir frá sjálfbærni til lífs eftir slag;
- að innleiða að fullu áætlanir fyrir fjölþátta lýðheilsuaðgerðir til að stuðla að og auðvelda heilbrigðan lífsstíl og að draga úr umhverfisþáttum (þ.m.t. loftmengun), félagslegum og efnahagslegum þáttum sem auka hættu á skagi erum við sem þjóð meira og minna meðvituð um orsakir og afleiðingar heilaslags.
Með aukinni lýðheilsu og betra líferni, er hægt að draga úr fjölgun slaga. Stærstu og öflugustu heildarsamtök fagaðila og slagþola í Evrópu, ESO og SAFE , gerðu með sér samkomulag 2018 um SAP-E, um eitt stærsta heilbrigðisátak gegn slagi í Evrópu er tók til starfa 2022 til 2030. Framkvæmdastjórn SAP-E leggur áherslu á að þeir fagaðilar er annast heilbrigðisþjónustuna og þeir er njóta hennar (slagþolar) tali saman með formlegum hætti. Stjórnvaldi hvers ríkis er gefinn kostur á að vera með öðrum evrópuríkjum í þessari sameiginlegu baráttu með undirritun sérstakrar viljayfirlýsingar þar um til 2030. Árangur fundarins var mjög góður og umræðurnar innihaldsríkar! Í ráði er að Leeni Laasfeld haldi áfram að starfa í anda þess, sem hún hefur gert hingað til í þágu félagsins um “líf eftir slag” og hvetur alla slagþola, hvar sem þá er að finna, að veita henni stuðning.

