Aðalfundur HEILAHEILLA var haldinn 7. mars 2027 í Oddsstofu, í húsakynnum félagsins í Mannréttindahúsi ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík og með tölvutengingu í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14, 600 Akureyri. Gísli Geirsson var valinn fundarstjóri og Kristín Árdal sem fundarritari. Gengið var til venjulegrar dagskrár aðalfundar, skýrsla stjórnar og framlagðir reikningar samþykkt samhljóða og Þórir Steingrímsson var endurkjörinn formaður til 3ja ára, en hann hefur verið formaður síðan 2006! Að loknum aðalfundarstörfum var fundi slitið, en formaðurinn ræddi við fundarmenn að honum loknum.


