Hver hefur sinn djöful að draga!

Stjórnarmeðlimir HEILAHELLA, Þórir Steingrímsson, formaður; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Páll Árdal gjaldkeri og Kristín Árdal, meðstjórnandi sátu einu fjölsóttustu ráðstefnu samtaka SAFE, öflugustu heildarsamtaka slagþolenda á Evrópusvæðinu í Stokkhólmi 8.-.9. mars 2026, þar sem u.þ.b. 400 fulltrúar voru saman komnir og ræddu um “Líf eftir slag”.  Eftirfylgni er eitt af höfuðmarkmiðum félagsins í samvinnu við fagaðila hér á landi og er með fulltrúa í SAP-E hópnum, að hjálpa heilbrigðisyfirvöldum hér á landi að innleiða Íslandsáætlun um slagið, með undirritun viljayfirlýsinga þar um til ársins 2030.  Heilaslögum fer fjölgandi um allan heim og Evrópa fer ekki varhluta af því, – þaðan af síður Ísland!  Því má m.a. kenna velferð um, maðurinn kann sér ekki hóf í neyslu og ólifnaði, skapar sér áhættuþætti sem eru óþarfir.  Hér á landi fá 2 einstaklingar slag á dag, – tveimur of mikið og fer því miður fjölgandi.  Eitt er víst, – ekkert slag er eins og það er eins mismunandi eins og menn-irnir eru margir og hver og einn hefur sinn djöful að draga í endurhæfingunni. Til þess er félagið í þessari þátttöku, að vera til staðar fyrir þá standa í baráttu að komast aftur inn í sam-félagið, vera með fagaðilum um heilaslagið í heilbrigðiskerfinu, sem er gott miðað við aðrar Evrópuþjóðir, –  en það má alltaf gera betur!

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur