Aðalfundur Heilaheilla 2026 var haldinn í Mannréttindahúsinu – ÖBÍ, Sigtúni 42 Reykjavík, sunnudaginn 7. marskl.11:00. Nettenging til Akureyrar á ZOOM.
Formaður Þórir Steingrímsson setti fundinn og stakk upp á Gísla Geirssyni sem fundarstjóra, er var samþykkt mótatkvæðalaust er tók við fundarstjórn. Stakk hann upp á því að Kristín Árdal yrði fundarritari og var það samþykkt mótatkvæðalaust. Kallaði hann eftir athugasemdum um fundarboðið, er bárust ekki. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboðið. Gengið var til dagskrár.
- Skýrsla stjórnar félagsins
Formaður kynnti skýrslu stjórnar sem var samþykkt athugasemdalaust. - Framlagðir endurskoðaðir reikningar til samþykktar.
Páll Árdal, gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins og gerði grein fyrir þeim. Voru þeir samþykktir athugasemdalaust. - Lagabreytingatillögur
Engar tillögur komu um lagabreytingar - Kosning stjórnar
Þórir Steingrímsson var einn í framboði til formanns og var því sjálfkjörinn til næstu 3ja ára mótatkvæðalaust. - Kosning 2ja skoðunarmanna reikninga.
Stungið var uppá þeim Þór Sigurðssyni og Gurli Einarsson sem skoðunarmönnum reikninga og voru þeir samþykktir. - Fjárhagsáætlun borin upp til samþykktar
Samþykkt var að haldið yrði áfram á sömu braut og undanfarin ár. - Kosning fulltrúa og talsmanna félagsins í ráð og nefndir
Samþykkt var að því yrði vísað til stjórnar eins og undanfarið. - Önnur mál
Engin kvaddi sér hljóðs undir þessum dagskrárlið.
Fundi slitið
Kristín Árdal.
