Reglulegi laugardagsfundur HEIILAHEILLA var haldinn í húsakynnum Mannréttindahúss ÖBÍ, Sigtúni 42 Reykjavík, þar sem formaðurinn, Þórir Steingrímsson, kynnti hvað væri framundan í starfi félagsins er varðar endurhæfingu eftir heilaslag. Sagði hann að hjá embætti landlæknis væri unnið að stofnun nýrrar landskrár, er gæti samræmst landsáætlun SAP-E um skráningu heilaslags og þá í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu, eins og með hjarta- og æðasjúkdómaskrá, og verður ein af heilbrigðisskrám landlæknis en tilgangur hennar er að afla þekkingar um heilsufar og heilbrigðisþjónustu, hafa eftirlit með þjónustunni, auka gæði hennar og meta árangur.
Verkefnastjóri heilbrigðisupplýsingasviðs leggur áherslu á samráð við hagsmunahópa á borð við sjúklingasamtök, s.s. eins og HEILAHEILL um innihald skrárinnar, framsetningu upplýsinga úr henni og hugsanlegt notagildi fyrir starfsemi félagsins. Myndi slíkt auðvelda upplýsingagjöf stjórnvalda, sambærilega við það sem gerist innan ríkja í Evrópu og draga úr byrði slagsins.

