Laugardagsfundur HEILAHEILLA var haldinn 3. október 2026 í aðstöðu þess að Sigtúni 42, Reykjavík. Með nettengingu á Zomm, þar sem öllum félögum um allt land var boðið að taka þátt. Margir áhugasamir mættu á fundarstað og Þórir Steingrímsson, formaður stjórnar, fór yfir starfsemi félagsins og með þátttöku þess í landsáætlun SAP-E hér á landi, er hann kynnti í mörgum liðum og hvað stjórn félagsins hyggst gera í framtíðinni. Lagðar voru fram margar, fróðlegar fyrirspurnir og fundarmenn ræddu mikið saman.


