Á aðalfundi Heilaheilla fimmtudaginn 23.02.2006, sem haldinn var að Hátúni 12, var kosinn ný stjórn. Þórir Steingrímsson, formaður,Jónína Ragnarsdóttir, ritari, Bergþóra Annasdóttir, gjaldkeri, Albert Páll Sigurðsson og Ellert Skúlason meðstjórnendur. Stjórnin endurspeglar markmið félagsins sem er að í henni sitja sjúklingar, aðstandendur og fagaðilar. Var fráfarandi formanni, Þóru Sæunni Úlfsdóttur þökkuð störfin, en hún flutti skýrslu stjórnar um starf félagsins síðast liðins árs.