2014.12.04 kl. 17 til 18:30.
Heilaheill – 5. fundur 2014-stjórnar
>> fjarfundatengsl til Akureyrar <<
Viðstaddir voru þrír aðalstjórnarmenn og einn varamanna:
Þórir Steingrímsson, formaður félagsins,
aðrir í aðalstjórn í stafrófsröð:
Gísli Ólafur Pétursson,
Páll Árdal sem var fjartengdur frá Akureyri.
Í varastjórn:
Kolbrún Stefánsdóttir.
Aðrir boðuðu forföll – m.a. vegna óveðurs og ófærðar.
Þetta gerðist:
1) Skýrsla formanns
a) Reglubundin starfsemi er í föstum skorðum bæði í Reykjavík og á Akureyri.
b) Aðspurður segir formaður frá starfinu í tengslum við stjórn SAFE. Þar er næsta dagleg tenging vegna úrlausnarefna. Ekki eru alveg hliðstæðir stjórnunarhættir í öllum þeim löndum sem eiga aðild að samtökunum – og hugsanlega ekki í öllum samtökunum. Línur eru lagðar þannig að allt starf aðildarfélaganna skilgreinist fallandi að regluverki Evrópusambandsins.
2) Ritari gerir grein fyrir vinnu framkvæmdanefndar vegna tvítugsafmælis félagsins.
Í umræðunni staðfestist að það er einhugur um að afmælishátíðinni skuli ætlað að kynna félagið, verkefni þess og árangur af starfi þess.
Hér eru taldir nærtækir þyngdarpunktar í starfinu um þessar mundir:
-
- Félagið á merkisfmæli
- Félagið hefur ákveðið að flytja verustað sinn og stórbæta aðgengi.
- Félagið stuðlar að aukinni þekkingu fólks á því sem veldur slagi og hvað þá er til ráða.
- Félagið leitar sífellt nýrrar þekkingar til hagsbóta félögum sínum og samfélaginu öllu.
- Félagið hefur náð góðum tengslum við sín norrænu systursamtök.
- Félagið leggur til stjórnarmann í Evrópusamtökunum næsta kjörtímabil.
- Félagið er í samstarfi við velferðar- og heilbrigðisyfirvöld sem styrkja það til að gegna hlutverki sínu til liðsinnis við slagþola og aðstandendur þeirra.
Félagið er í samstarfinu SAMTAUG með sjúklingafélögum á tengdum sviðum.
Félagið er í samstarfi við sjúklingafélagið HUGARFAR um hæfingu og endurhæfingu heilaskertra.
3) Ákveðið að stefna að tímasetningu sem fyrst eftir að flutt er inn í nýja húsnæðið en ljóst er að það verður ekki aðgengilegt fyrr á fyrstu mánuðum nýs árs.
Nánar um dagskrá á næsta fundi stjórnar.
4) Félagið býður til kaffis við jólasamkomu.
Vegna fyrirspurnar Páls er staðfest að sá er siður félagsins að bjóða til kaffis á jólafundi í byrjun desember.
Fleira ekki. Fundargerð ritaði Gísli Ólafur Pétursson.