Landspítali hóf formlega segabrottnámsmeðferð við blóðþurrðar-slögum 9. janúar 2018. Það skref var stigið í framhaldi af nýju verklagi við móttöku og meðferð sjúklinga með brátt heilaslag sem tók gildi fyrir aðeins þremur mánuðum.Markmiðið er að bæta horfur sjúklinga með brátt blóðþurrðarslag sem koma til meðferðar á spítalann. Meðferðin stuðlar að enduropnun æðarinnar eins fljótt og unnt er til að minnka skaða á heila og fötlun sem af honum hlýst.
Björn Logi Þórarinsson, sérfræðingur í almennum lyflækningum og taugalækningum á Landspítala, segir að algengasta orsök blóðþurrðarslags sé skyndileg stífla í slagæð vegna blóðsega sem skerðir eðlilegt blóðflæði til heila og veldur fljótt varanlegri skemmd þar. „Tveir meðferðarmöguleikar koma til greina. Annars vegar lyfjagjöf í æð til að leysa upp blóðsegann og hins vegar segabrottnám með æðaþræðingu. Árangur beggja meðferða er mjög tímaháður, því fyrr sem meðferðin er veitt því minni skaði hlýst og horfur sjúklinganna verða betri,“ segir Björn Logi.
Nýja verklagið er gjörbreyting á eldra verklagi sem var orðið sjö ára gamalt. Í umsvifum nær það til utanspítala-þjónustu, bráðamóttöku, röntgen-, tauga- og gjörgæsludeilda spítalans. Það er unnið af þverfaglegum verkefnahópi einstaklinga úr mismunandi stéttum innan spítalans. „Verkefnið er gríðarlega viðamikið og verklagið framsækið, til dæmis að því leyti að það felur í sér öll nýleg tilmæli um lykilþætti vandaðra vinnubragða við slíka móttöku og meðferð. Það er því mikið ánægjuefni hversu hratt og vel innleiðingin hefur gengið.“
- BJÖRN LOGI ÞÓRARINSSON, LYF- OG TAUGALÆKNIR
- HJALTI MÁR ÞÓRISSON, YFIRLÆKNIR INNGRIPSRÖNTGEN- OG ÆÐAÞRÆÐINGA LSH
- KRISTÍN ÁSGEIRSDÓTTIR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
- KRISTÍN UM HEILANN
- FRÉTT UM VIÐRKENNINGU Á ÁRSFUNDI 2018