HEILAHEILL ætlar að halda upp á alþjóðlega Slagdaginn (heilablóðfallið) þriðjudaginn 29. október n.k. með málþingi kl.16.30 í Norræna húsinu og er almenningi boðið og er ókeypis aðgangur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir og geta vakið athygli á áhættuþáttunum!
Haldnir verða stuttir fyrirlestrar fagaðila og sjúklinga og verður gestum og gangandi boðið upp á kaffisopa. Haldið er upp á þennan dag um allan heim og þar sem HEILAHEILL ætlar ekki að láta sitt eftir liggja, enda hefur félagið fengið viðurkenningu frá SAFE (Stroke Alliance for Europe) og bjóða almenningi að hlusta á fróðleik um slagið og hvernig best er að bregðast við því.