Aðalfundur 2026

Aðalfundur Heilaheilla 2026 var haldinn í Mannréttindahúsinu – ÖBÍ, Sigtúni 42 Reykjavík, sunnudaginn 7. marskl.11:00. Nettenging til Akureyrar á ZOOM.   

Formaður Þórir Steingrímsson setti fundinn og stakk upp á Gísla Geirssyni sem fundarstjóra, er var samþykkt mótatkvæðalaust er tók við fundarstjórn.  Stakk hann upp á því að Kristín Árdal yrði fundarritari og var það samþykkt mótatkvæðalaust.  Kallaði hann eftir athugasemdum um fundarboðið, er bárust ekki. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboðið.  Gengið var til dagskrár.

  1. Skýrsla stjórnar félagsins
    Formaður kynnti skýrslu stjórnar sem var samþykkt athugasemdalaust.
  2. Framlagðir endurskoðaðir reikningar til samþykktar.
    Páll Árdal, gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins og gerði grein fyrir þeim. Voru þeir samþykktir athugasemdalaust.
  3. Lagabreytingatillögur
    Engar tillögur komu um lagabreytingar
  4. Kosning stjórnar
    Þórir Steingrímsson var einn í framboði til formanns og var því sjálfkjörinn til næstu 3ja ára mótatkvæðalaust.
  5. Kosning 2ja skoðunarmanna reikninga.
    Stungið var uppá þeim Þór Sigurðssyni og Gurli Einarsson sem skoðunarmönnum reikninga og voru þeir samþykktir.
  6. Fjárhagsáætlun borin upp til samþykktar
    Samþykkt var að haldið yrði áfram á sömu braut og undanfarin ár.
  7. Kosning fulltrúa og talsmanna félagsins í ráð og nefndir
    Samþykkt var að því yrði vísað til stjórnar eins og undanfarið.
  8. Önnur mál
    Engin kvaddi sér hljóðs undir þessum dagskrárlið.

Fundi slitið

Kristín Árdal.

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur