Aðventumorgunkaffilaugardagsfundur HEILAHEILLA

Laugardagsfundur HEILAHEILLA 2. desember 2017

Laugardagsfundur HEILAHEILLA 2. desember 2017

Aðventufundur, laugardagsfundur HEILAHEILLA degi fyrir aðventuna, var haldinn 2. desember í Sigtúni 42, Reykjavík, eins og auglýst var, var honum “streymt” á Facebókina og þeir Júlíus Sveinbjörnsson og Kári Halldórsson, nemendur í kvikmyndagerð við Borgarholtsskóla, sáu um það.

Laugardagsfundur HEILAHEILLA 2. desember 2017

Laugardagsfundur HEILAHEILLA 2. desember 2017

Laugardagsfundur HEILAHEILLA 2. desember 2017Geta allir svo skoðað fundinn eftirá á YouTube. Séra Baldur Kristjánsson, félagi og stjórnarmaður, reið á vaðið og flutti hugvekju með sínu lagi og samkvæmt venju. Hann lýsti sínu áfalli og hugleiðingum um það. Þá tók Þórir Steingímsson, formaður, við og fór yfir stöðu félagsins og hvað væri framundan í starfi þess. Að hans máli loknu tók Þórunn Erna Clausen, leik- og söngkona við og skemmti fundarmönnum með söng og sagði sína sögu er varðar slagið. Þá kom Jón Hjartarson, leikari og rithöfundur, og las úr verkum sínum fundarmönnum til mikillar gleði og skemmtunar.

Menn gæddu sér á góðu kaffi og meðlæti á meðan fundi stóð og gerðu góðan róm að. Hafa þessir fundir notið mikilla vinsælda með félagsmönnum og gestum þeirra. Þá hafa fagaðilar einnig sýnt þessum dagskrárlið félagsins mikinn áhuga, þar sem hægt er að fjalla um slagið á sem breiðustum grundvelli, bæði faglegum og félagslegum! Að lokum fóru fundarmenn heim sínu fróðari en áður, glaðir í bragði!

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur