HÉLT STYRKTARTÓNLEIKA Í SALNUM 8.NÓVEMBER s.l.
Fram komu:
Þórunn Lárusdóttir leikkona og verndari sjóðsins tók lagið.
Guðrún Gunnarsdóttir og Valgeir Skagfjörð fluttu lög eftir Valgeir Skagfjörð
Vallagerðisbræður fluttu lög af plötu sinni Æskunnar Förunautar sem er komin út.
Best geymda leyndarmálið úr sveitinni Hjónabandið úr Fljótshlíðinni flutti lög.
Elísa Geirsdóttir, Guðmundur Pétursson og Dísa Hreiðarsdóttir fluttu lög af nýjustu plötu Elísu Empier Fall.
The Viking Giant Show fluttu lög af væntanlegri plötu sinni og héldu uppi fjörinu.
Kynnir kvöldsins var hinn bráðskemmtilegi fréttamaður Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Nánari fréttir af tónleikunum síðar, en allir er komu fram og lögðu sitt af mörkum til þessa mikilvæga málefnis eiga miklar þakkir skilið fyrir óeigingjarnt starf.
Faðmur Heilaheilla er styrktarsjóður til að styðja barnafjölskyldur þar sem foreldri hefur fengið heilaslag/heilablóðfall. Hægt er að sækja um styrki úr sjóðnum fyrir tómstundir,námi eða öðrum óvæntum útgjöldum í tengslum við líf og störf barnanna sem erfitt er að mæta sökum tekjuskerðingar meðan á veikindum stendur.
Hægt er að styrkja Faðm með því að leggja inna á bók nr. 101-05-290900-611294 2209