Svæðisráðstefna SAFE (Stroke Alliance For Europe) yfir skandinavísku löndin, þ.e. norðurlöndin ásamt Eystrasaltsríkinu Litháen, var haldin 16. júní í Osló nú á dögunum. Þar mættu fulltrúar HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson formaður, Páll Árdal talsmaður Norðurdeildar félagsins á Akureyri og Magnús Pálsson, fulltrúi félagsins í opnu húsi í Reykjavík. Fjallað var um nýungar í læknavísindum á Norðurlöndum […]
Sigfús Helgi Kristinsson, meistaraprófsnemi í talmeinafræði vann við meistaraprófsverkefni sitt undir leiðsögn margra aðila og varði það 3. júní í Læknagarði, að viðstöddum fulltrúum HEILAHEILLA og fjölda manns. Kristinn Tómasson, læknir, prófaði Sigfús og gaf honum góð ummæli. Sigfús greindi m.a. frá því að öll vinna hafi gengið vel á öllum stigum verkefnisins, og þakkaði það m.a. […]
Merkur fundur um slagið var á Akureyri um helgina, er Páll Árdal forsvarsmaður félagins á Akureyri setti, nánar i Stássinu, Greifanum við Glerárgötu, sunnudaginn 22. maí s.l.. Þau Velgerður Sverrisdóttir, fyrrum ráðherra og alþingismaður, Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA og Friðriki Vagn Guðjónsson, endurhæfingalæknir á Kristnesi, tóku til máls og greindu frá reynslu sinni af áfallinu. Á […]
Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona, varaborgarfulltrúi og formaður Velferðarráðs Reykjavíkurborgar heimsótti Laugardagsfund HEILAHEILLA 7. maí s.l.. Eftir stutta skýrslu Þóris Steingrímssonar formanns um félagið, las leikkonan upp úr bók Ingólfs heitins Margeirssonar, Afmörkuð stund, við mikla kátínu fundarmanna. Eins og mönnum er kunnugt skrifaði Ingólfur bókina um lífið og tilveruna eftir heilablóðfall í gamansömum tón. Var hann […]
Eitt af meginverkefnum félagsins er að vera með forvarnarstarf á vinnustöðum og fimmtudaginn 14.04.2016 og var starfsfólki Vinnueftirlita ríkisins kynnt starfsemi og áætlun þess á þessu ári. Formaðurinn Þórir Steingrímsson flutti fyrirlestur er var sendur út til annarra starfsmanna úti á landi. Ræddi hann m.a. út frá sinni eigin reynslu af slaginu er hann fékk fyrir u.þ.b. […]
Fróðlegur “Laugardagsfundur” HEILAHEILLA var haldinn 9. apríl s.l. að Sigtúni 42, Reykjavík. Þórir Steingrímsson, formaður, hélt stutta tölu um félagsmál og stöðuna í samfélaginu. Eftir það tók Kristín Stefánsdóttir, formaður styrktarsjóðsins FAÐMS, til máls og greindi frá reynslu sinni af slaginu, er hún fékk 2001. Nokkrum árum síðar fékk tvítugur sonur hennar einnig slag […]
Aðalfundur HEILAHEILLA var haldinn sunnudaginn 28. febrúar að Sigtúni 42, Reykjavík með beintengingu norður á Greifann á Akureyri. Eftir að formaðurinn Þórir Steingrímsson setti fundinn var samþykkt að Gísli ÓlafurPétursson væri fundarstjóri. Gengið var til dagskrár og flutti formaðurinn fundarmönnum skýrslu s.l. árs og Axel Jespersen, gjaldkeri félagsins, gerði grein fyrir reikningum 2015. Í umræðunni […]
Þetta er alþjóðlegt framtak kvenna, upprunnið í Bandaríkjunum og vekur athygli þeirra hér á landi til hjartasjúkdóma. Þessi samtök hér á landi hafa vinnuheitið HHH-hópurinn og hefur verið með árlegar skemmtanir. Hjartalæknirinn Þórdis Jóna Hrafnkelsdóttir formaður Go Red setti skemmtunina og svo komu þau Björn Thoroddsen, Anna Þóra Björnsdóttir, uppistandari, Ólöf Guðný Geirsdóttir, næringafræðingur, Erla […]
Áhrifamikill félagsfundur var hjá HEILAHEILL laugardaginn 6, febrúars.l. í samkomusal félagsins að Sigtúni 42, Reykjavík, sem þær heimsóttu Elva Ósk Ólafsdóttir, leikkona og Sólveig Árnadóttir, rithöfundur bókarinnar “Með blóð á heilanum” og sögðu frá sinni reynslu. Þórir Steingrímsson, formaður, flutti skýrslu um félagið og stöðu þess í samfélaginu og eftir það tóku þær til máls og […]
Akureyringar hafa verið duglegir við að vera meðfélagsfundi á Greifanum á Glerárgötu fyrir slagþola, aðstandendur þeirra og fagaðila. Eru þessir fundir hugsaðir fyrir allt Norðurland, þar sem þeir eru miðsvæðis fyrir norðanmenn. Þeir hafa sýnt virkni félagsins með sínum jákvæðu störfum og markmiðum, sem er að ná til þeirra er hafa lent í áfallinu og […]