Á heimasíðu Vísis er frásaga slagþola sem er Soffía Adda A. Guðmundsdótti er segir frá reynslu sinni og atburðarás sem hófst um hádegi 13. febrúar 2025 leiddi til þess að hún fékk heilablóðfall sem breytti lífi hennar til frambúðar. Þar sem lögð er mikil áhersla á að greining fyrstu einkennum slagsins svo unnt sé að […]
Í boði framkvæmdastjórnar Landspítalans 22. maí í Silfurbergi í Hörpu sat fulltrúi HEILAHEILLA ársfund Landspítalans 2026 undir yfirskriftinni “Mælanlegur árangur“. Margir tóku til máls, m.a. Alma Möller heilbrigðis-ráðherra og Runólfur Pálsson framkvæmdastjóri og fluttu þau athyglisverð erindi um uppvöxt og vaxandi þjónustu spítalans við auknar kröfur almennings. Í máli Runólfs kom fram að leitast yrði […]
Fleiri og fleiri Evrópuríki hafa að undanförnu undirritað viljayfirlýsingu samtakanna SAP-E, sem eru ein stærstu og öflugustu heildarsamtök fagaðila og slagþola í Evrópu gegn slagi (heilablóðfalli), þá með betri lýðheilsu og heilbrigðari lífstíl og spurningin er hvort íslensk stjórnvöld ætla sofna á verðinum og taka ekki þátt?! ESO og SAFE gerðu með sér samkomulag 2018 […]
Dagana 3.- 6. maí 2026 fóru þau dr. Marianne E. Klinke, taugahjúkrunarfræðingur, Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugalæknir og Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA á ráðstefnu samtakanna SAP-E í Maastrtict, Hollandi, sem landsráðgjafar (coordinators) samtakanna á Íslandi. Þarna voru komnir saman 100 fulltrúar evrópulanda, bæði fagaðilar og slagþolar er greindu frá stöðu hvers lands fyrir sig […]
Góður og vel sóttur laugardagsfundur félagsins var haldinn í húsakynnum Mannréttindasamtaka ÖBÍ, Sigtúni 42, Reykjavík, með nettengingu á Zoom um land allt 2. maí 2026. Formaður félagsins, Þórir Steingrímsson, kynnti fyrir fundarmönnum markmið forystunnar um áhersluatriði í endurhæfingu á landsvísu, eins og gerist víða í Evrópu og Ísland má ekki vera neinn eftirbátur þar um. […]
Afar afkastamikið og áhugavert stefnumótaþing ÖBÍ var haldið á Hilton hotel í Reykjavík 17. apríl, þar sem var fjallað um tillögur starfshópa, er unnið hafa í nokkur ár. Fulltrúar HEILAHEILLA, þau Þórir Steingrímsson formaður, Gísli Geirsson og Kristín Árdal varamenn stjórnar, ásamt Gurli Geirsson.
Reglulegi laugardagsfundur HEIILAHEILLA var haldinn í húsakynnum Mannréttindahúss ÖBÍ, Sigtúni 42 Reykjavík, þar sem formaðurinn, Þórir Steingrímsson, kynnti hvað væri framundan í starfi félagsins er varðar endurhæfingu eftir heilaslag. Sagði hann að hjá embætti landlæknis væri unnið að stofnun nýrrar landskrár, er gæti samræmst landsáætlun SAP-E um skráningu heilaslags og þá í samræmi við lög […]
Stjórnarmeðlimir HEILAHELLA, Þórir Steingrímsson, formaður; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Páll Árdal gjaldkeri og Kristín Árdal, meðstjórnandi sátu einu fjölsóttustu ráðstefnu samtaka SAFE, öflugustu heildarsamtaka slagþolenda á Evrópusvæðinu í Stokkhólmi 8.-.9. mars 2026, þar sem u.þ.b. 400 fulltrúar voru saman komnir og ræddu um “Líf eftir slag”. Eftirfylgni er eitt af höfuðmarkmiðum félagsins í samvinnu við […]
Aðalfundur HEILAHEILLA var haldinn 7. mars 2027 í Oddsstofu, í húsakynnum félagsins í Mannréttindahúsi ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík og með tölvutengingu í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14, 600 Akureyri. Gísli Geirsson var valinn fundarstjóri og Kristín Árdal sem fundarritari. Gengið var til venjulegrar dagskrár aðalfundar, skýrsla stjórnar og framlagðir reikningar samþykkt samhljóða og Þórir Steingrímsson […]
Mánaðarlegur “laugardagsfundur” HEILAHEILLA var haldinn 7. febrúar 2026 í Mannréttindahúsi ÖBÍ við góða þátttöku. Sérstakir gestir fundarins voru þau Leeni Lsaasfeld, margmiðlunarhöfundur, slagþoli, og Þór G. Þórarinsson, sérfræðingur og fv. skrifstofustjóri Félagsmálaráðuneytisins. Formaðurinn Þórir Steingrímsson hóf máls á stöðu félagsins í umræðunni um “líf eftir slag” og greindi frá starfi þeirra sem talsmanna SAP-E […]










