Góð stemning var á reglulegum þriðjudagsfundi HEILAHEILLA er nokkrir félagar HUGARFARS komu. Nokkrir hjúkrunarfræðinemar og kynntu að fyrir næstu helgi ætlar hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs HÁSKÓLA ÍSLANDS vera með kynningardag, hjúkrunarfræðinema sem þeir kalla “Á krossgötum”, í Háskóla íslands föstudaginn 23. janúar kl. 11:40 -15:00 í Hjúkrunarfræðideild Eirbergi, 1. og 2. hæð. Fundarmönnum þótti þetta gott framtak […]
Nú hefur félaginu borist liðsauki þar sem Anna Sigrún Baldursdóttir, fyrrum aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra (Guðbjarts Hannessonar 2009-2004) og aðstoðarmaður Páls Matthíassonar forstjóra Landspítala. Hún hefur tekið að sér Go Red-tengsl félagsins, en um er að ræða samstarfshóp Hjartaheilla, Heilaheilla og Hjartaverndar, þar sem stefnt er að átakinu Go Red upp úr miðjum febrúar n.k.. Eins og fram […]
Heilaheill á Norðurlandi hélt sinn jólafund þriðjudaginn 9. desember á Stássinu á Greifanum. Mjög góð mæting var og gerðu menn vel að veitingunum sem voru í boði Sjá fleri myndir hér! Til baka
Það var góð og hugljúf stemning á jólafundi HEILAHEILLA laugardaginn 6. desember 2014, þegar þau Kristbjörg Kjeld, leikkona, og séra Baldur Kristjánsson ávörpuðu fundarmenn. Veitingar voru ekki af verra taginum, þar sem jólaljósin loguðu á hverju borði og jólakökurnar smökkuðust vel. Haflína Breiðfjörð stýrði kaffiveitingum með myndarbrag. Kom Skyrgámur í óvænta heimsókn og ræddi við […]
Undirritaður hélt ásamt Þóri Steingrímssyni formanni Heilaheilla til Helsinki mánudaginn 3ja nóv. sl. og komum við heim föstudaginn 7unda sama mánaðar. Farið var að til að sitja tvær stefnur. Báðar tengdust ,,Stroke Alliance For Europe“ sem gæti útleggst ,,Slagbandalag Evrópu“. Hin fyrri var ráðstefna með þáttöku SAFE eins og Stroke alliance for Europe er gjarnan […]
Það var glatt á hjalla á fundi HEILAHEILLA nú í morgun, 1. nóvember 2014, á tónleikum Björns Thoroddsen, gítarleikara. Fundarmenn skemmtu sér konunglega, þegar hann fór yfir skalann á gítarnum og hafði með sér “Invisiable band” (ósýnilega hljómsveit) þar sem hann léksvo af mikilli snilld á gítarinn að eins um stærri hljómsveit væri að ræða. […]
Á laugardaginn ætlar Björn Thoroddsen, gítarleikari, að heimsækja félagsmenn og gesti þeirra í Síðumúla 6, 108 Reykjavík kl.11:00! Þetta er kærkomið tækifæri fyrir félagsmenn og alla tónlistarunnendur að hlýða á þennan snilling og njóta listar hans. Það þarf ekki að kynna Björn fyrir félagsmönnum er fylgjast með tónilst á annað borð! Hann hefur unnið […]
Heilaheill á Norðurlandi hélt sinn fyrsta fund vetrarins þriðjudaginn 14 október. Vel var mætt og sagt var frá komu formanns HEILAFÉLAGSINS í Færeyjum, Bjarne Juul Petersen. Einnig var sagt frá ferð Páls Árdals og Þóris Steingrímssonar formanns Heilaheilla til Noregs á ráðstefnu Slagforeningerne i Norden í Gardemoen, í Osló, Noregi 11.-12. september 2014. Þegar minnst er á Færeyingana […]
Heilaheill hélt ráðstefnu á Hótel Sögu laugardaginn 10. október í tilefni af norræna málstolsdeginum, en félagið er aðili að Nordiske Afasirådet. Fulltrúi félagsins, Guðrún Torfhildur Gísladóttir, hélt utan í september s.l. og sat stjórnarfund þess. Lögð var áhersla á að hvert aðildarland gerði eitthvað á þessum degi til þess að vekja athygli á þessum afleiðingum […]
HEILAHEILL verður með málþing/starfaþing um talörðugleika, – málstol skjólstæðinga félagsins o.fl. að Hótel Sögu föstudaginn 10. október n.k. frá kl.13-17 og langar okkur að sem flestir taki þátt! Þetta þing er öllum opið og ókeypis þátttaka! Heilaheill; Félag MND – sjúklinga; Heilaheill; LAUF – Landssamtök áhugafólks um flogaveiki; MG – félag Íslands; MS – félag […]