Eins og áður hefur komið fram hefur HEILAHEILL hefur tekið við formennsku í stjórn NORDISK AFASIRÅD og eiga fulltrúar Færeyja, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Íslands sæti í þessari stjórn, en Danmörk er ekki með að þessu sinni. Rætt hefur verið um, – og verður enn um stöðu félaga málstolssjúklinga á Norðurlöndum. Þórunn Hanna Halldórsdóttir, yfirtalmeinafræðingur, Baldur Kristjánsson stjórnarmaður og Þórir Steingrímsson formaður HEILAHEILLA hafa tekið þátt í undirbúningi þessarar stjórnarforystu og hvetur félagið hvern þann sem hefur áhuga á málefninu að hafa samband í 860 5585 eða í heilaheill@heilaheill.is. Stjórnin er þakklát hverjum þeim sem vill leggja félaginu lið! Nordisk Afasiråd hefur gefið út myndband. Það hefur þegar vakið mikla athygli á hindrunum sem fólk með málstol getur staðið frammi fyrir í heimi nútímans, sem reiðir sig æ meira á rafrænar lausnir og rafræn samskipti. Fjórir spennandi örfyrirlestrar um málstol í tilefni af Alþjóðlega slagdeginum verða í beinni streymingu kl.17:og og sést hér 29. okt 2020.