Á Akureyri tóku félagar Heilaheilla, þar á meðal Sigríður Sólveig Stefánsdóttir, Páll Hallfreður Árdal o.fl., á móti gestum og gangandi á Glerártorgi á alþjóðadegi heilaslagsins 29. október 2023, með blóðþrýstingsmælingum o.fl.. Það sama gerðu félagarnir Gísli Geirsson og Gurli Geirsson í Kringlunni, Reykjavík. Fólk kom einnig á fyrirlestrarfund í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins, þar sem þeir Þórir Steingrímsson, formaður, Sindri Már Finnbogason, framkvæmdastjóri og Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugalæknir héldu erindi og sátu fyrir svörum. Spurðu fundarmenn margra spurninga og var greinilega mikill hugur í mönnum upp á framtíðina.