Á aðalfundi SAFE (Evrópusamtaka slagþola) nú í morgun, eftir tveggja daga ráðstefnu, var HEILAHEILL heiðrað sérstaklega fyrir frábæra frammistöðu í sínu starfi og var ákveðið að veita styrki til smærri aðildarfélaga er hafa verið með framúrskarandi vinnu fyrir hönd sjúklinga á árinu 2018! Eftir stutta lýsingu Jón Barrick forseta samtakanna á frammistöðu félaganna veitti Þórir Steingrímsson, formaður félagsins, þessari viðurkenningu móttöku og þakkaði fyrir sig og sína félagsmenn. Þeir Baldur Benedikt Ermenrekur Kristjánsson og Páll Hallfreður Árdal sátu ráðstefnuna ásamt Þóri.