Stjórnarmeðlimir HEILAHELLA, Þórir Steingrímsson, formaður; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Páll Árdal gjaldkeri og Kristín Árdal, meðstjórnandi sátu einu fjölsóttustu ráðstefnu samtaka SAFE, öflugustu heildarsamtaka slagþolenda á Evrópusvæðinu í Stokkhólmi 8.-.9. mars 2026, þar sem u.þ.b. 400 fulltrúar voru saman komnir og ræddu um “Líf eftir slag”. Eftirfylgni er eitt af höfuðmarkmiðum félagsins í samvinnu við fagaðila hér á landi og er með fulltrúa í SAP-E hópnum, að hjálpa heilbrigðisyfirvöldum hér á landi að innleiða Íslandsáætlun um slagið, með undirritun viljayfirlýsinga þar um til ársins 2030. Heilaslögum fer fjölgandi um allan heim og Evrópa fer ekki varhluta af því, – þaðan af síður Ísland! Því má m.a. kenna velferð um, maðurinn kann sér ekki hóf
í neyslu og ólifnaði, skapar sér áhættuþætti sem eru óþarfir. Hér á landi fá 2 einstaklingar slag á dag, – tveimur of mikið og fer því miður fjölgandi. Eitt er víst, – ekkert slag er eins og það er eins mismunandi eins og menn-irnir eru margir og hver og einn hefur sinn djöful að draga í endurhæfingunni. Til þess er félagið í þessari þátttöku, að vera til staðar fyrir þá standa í baráttu að komast aftur inn í sam-félagið, vera með fagaðilum um heilaslagið í heilbrigðiskerfinu, sem er gott miðað við aðrar Evrópuþjóðir, – en það má alltaf gera betur!

