Hollvinir Grensásdeildar veruleiki!

Miðvikudaginn 5. apríl 2006 héldu samtökin Hollvinir Grensásdeilar stofnfund sinn í safnaðarheimili Grensáskirkju klukkan 20:00 og gerðust margir stofnfélagar.  Gestir fundarins voru Siv Freiðleifsdóttir, heilbrigðisráðherra, er kvaðst hafa lært sjúkraþjálfun á Grensásdeild á þeim tíma er sundlaugin var tekin í notkun og Ingólfur Margeirsson, rithöfundur, er las úr bók sinni “Afmörkuð stund”.  Að undirbúningi störfuðu þeir Ásgeir Ellertsson, læknir,  Gunnar Finnsson, rekstrarhagfræðingur,  Sigmar Þór Óttarsson,  kennari,  Sveinn Jónsson, endurskoðandi og Þórir Steingrímsson, rannsóknarlögreglumaður, sem er jafnframt formaður HEILAHEILLA.  Þeir voru kosnir í hina nýju stjórn ásamt Önnu Geirsdóttur, lækni og Baldvini Jónssyni, fyrrverandi formanni Sniglanna.  Þeir Bergur Jónsson og Ellert Skúlason voru kosnir skoðunarmenn reikninga.  Að samtökunum standa núverandi og fyrrverandi sjúklingar deildarinnar,  aðstandendur og vinir þeirra og starfsfólk tengt deildinni fyrr og nú, svo og fagaðilar. 

Sjá myndir af fundinum.

Tilgangur samtakanna er að styðja við, efla og styrkja endurhæfingarstarfsemi þá, sem fram fer á Grensásdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss.  Margir þarfnast endurhæfingar eftir að hafa lent í sjúkdómum eða slysum.   Þar hefur Grenásdeild verið í fararbrodddi frá því deildin tók til stafa 1973.   Fjárskortur hefur þó löngum hamlað starfsseminni og legurúmum hefur ekki fjölgað í áranna rás þó að íbúum landsins hafi fjölgað um  40% og  meðalaldur hækkað,   sem allt hefur leitt til enn meiri hlutfallslegrar þarfar fyrir endurhæfingu.  Að því slepptu að sundlaug var bætt við á níunda áratug,  hefur önnur sjúkra- og iðjuþjálfunaraðstaða ekki verið aukin.  Fara því saman mikil  og vaxandi þrengsli og erfið aðstaða bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk.  Sárast er þó að fjöldi fólks verður að bíða mánuðum saman,  oft við miklar kvalir og skerðingu líkamlegrar getu vegna þess að það kemst ekki í endurhæfingu,  en geta í bæklunarskurðaðgerðum,  þar með talin liðaskipti,  Landspítala Háskólsjúkrahúss,  sem einnig þarf að auka, er nú meiri en afkastagetu Grensásdeildar nemur.  Þeim einstaka árangri,  sem engu síður hefur náðst á deildinni við þær erfiðu aðstæður,  sem hún býr,  má þakka frábæru hámenntuðu, velþjálfuðu og samhentu liði lækna,  hjúkrunarfólks,  sjúkra- og iðjuþjálfa og aðstoðarfólks.  Samtökin vilja sérstaklega benda á að starfsemi Grensásdeildar hefur reynst þjóðfélaginu mjög arðbær.  Árið 2004 voru samkvæmt Hagstofu Íslands og Ríkisskattstjóra  meðalatvinnutekjur á hvern starfandi einstakling á landinu 2,716 m.kr., og tekjutengdir skattar og útsvör um 660 þús. kr..   Það árið var kostnaður við rekstur Grensásdeildar 542 m.kr..  Legu og dagdeildasjúklingar voru 589 og komur á göngudeild 3.269.  Þótt eingöngu sé miðað við fyrri töluna og að aðeins20% ,  þ.e. 118,  gætu horfið til starfa á ný,  mundu árlegar atvinnutekjur þeirra nema 320 m.kr. og skattatekjur ríkisins af þeim um 78 m.kr..  Innan tveggja ára mundu því atvinnutekjur þeirra nema hærri upphæð en kostnaðinum við Grensásdeild árið sem þeir dvöldu þar, og skattatekjur ríkisins af þeim mundu greiða upp þann kostnað á tæpum sjö árum.   Hvað þau snertir,  sem ekki komast á vinnumarkaðinn aftur en geta bjargað nauðþurftum sínum sjálf,  verður seint metið til fjár þau auknu lífsgæði,  sem endurhæfingin á Grensásdeild hefur fært þeim.  Þá sparast ríkinu stórfé þegar þessir einstaklingar geta farið að búa heima hjá sér í stað þess að þurfa að dveljast á opinberum stofnunum.  Með stofnun Hollvina Grensásdeildar er verið að benda á nauðsyn þess að efla það merka starf, sem þar er unnið,  og að það snertir okkur öll beint eða óbeint á einhvern hátt.

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur