Á sólríkum fimmtudegi 6. júlí s.l. í garði Ingólfs Margeirssonar rithöfundar í vesturbænum, funduðu þeir Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, Albert Páll Sigurðsson, taugasérfræðingur á LSH og Ingólfur um undirbúning málþings HEILAHEILLA, samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins. Einnig er Ingibjörg Kolbeins, hjúkrunarfræðingur á LSH með í undirbúningshópnum, en var fjarverandi. Yfirskrift málþingsins “Heilaheill til framtíðar” lýsir í senn markmiðum félagsins og hvernig það hyggst skilgreina sjúkdóma er orsaka heilaslag og hvernig það geti komið þekkingunni til skila. Munu fagaðilar, sérfræðingar á hverju sínu sviði, halda erindi með innskoti sjúklinga og aðstandenda og velta spurningum upp er varða endurhæfingu og samfélagslega þjónustu heim eftir útskrift og er endurhæfingu nokkurn tímann lokið, hvar kreppir að í þjónustunni o.s.frv. Drög að dagskrá eru komin og hugmyndin var að hafa panelumræður í lok málþingsins, sem er áætlað laugardaginn 21 október 2006