Fundur áttunda áttunda 2006

Þriðjudaginn áttunda áttunda 2006 var annar fundur í samskiptum fulltrúa SAMTAUGAR, samkvæmt undirritaðri yfirlýsingu um samstarf með Landspítala-háskólasjúkrahúss og SAMTAUGAR á taugadeild sjúkrahússins B2 í Fossvogi.  Í samstarfi félaga taugasjúklinga eru eftirtalin félög: Félag MND – sjúklinga; Heilaheill; LAUF – Landssamtök áhugafólks um flogaveiki; MG – félag Íslands; MS – félag Íslands og Parkinsonsamtökin á Íslandi.  Sameiginlega lýsa þessir aðilar yfir vilja sínum til að eiga samstarf með skipulegum hætti um mál sem varða skjólstæðinga félaganna og tengjast  LSH.  Þennan fund sátu þau Þórir Steingrímsson, f.h. Samtaugar [fulltrúi Heilaheilla] og Marianne Elisabeth Klinke f.h. LSH og fóru yfir stöðuna.  Lagði Marianne Elisabeth fram mótaðar hugmyndir um samvinnu aðila og hún myndi hefjast á fræðslu um sjúkdóma er heyrðu undir SAMTAUG, þá sérstaklega Heilaheill.  Taldi hún að u.þ.b. 60% sjúklinga sem væru til meðferðar á taugadeildinni B2 hefðu fengið heilaslag með einhverjum hætti.  Varð það að samkomulagi að Heilaheill riði á vaðið með þetta samstarf og notaði það sem frumraun sem aðildarfélög SAMTAUGAR gætu lært af í framtíðinni og notað í samskiptum sínum við LSH.  Þá lagði fulltrúi LSH fram hugmynd um að stjórn Heilaheilla myndi funda til að byrja með “Stroke-teyminu” á taugadeildinni B2 miðvikudaginn 20.09.2006 kl.11:30, síðan væru fyrirhugaðir fræðsludagar í framhaldinu um heilaslag þann 20.09. og 31.09.2006.  Þá kom einnig fram að fyrir dyrum stendur að stofna sérstaka deild á taugadeildinni B2, með starfsliði sem sérhæfði sig í meðferð á sjúklingum sem fengið hafa heilaslag. 

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur