
Eftir því sem líður meira á umfjöllunina um heilablóðfall, bæði innan sjúklingafélaganna og fagaðilanna, þá beinist umræðan meira og meira að einstaklingsmeðferðinni. Við það hafa vaknað upp spurningar hjá fagaðilunum um hvort heilablóðfallseining innan spítalanna, skipuð sérhæfðu starfsfólki, gæti ekki skipt einhverju máli. Á athyglisverðum fræðslufundi er haldinn var s.l. þriðjudag 10.10.2006, samkvæmt samkomulagi við SAMTAUG sem Heilaheill er aðili að, flutti Einar Már Valdimarsson læknir fræðslu um marktækan árangur af slíkum einingum erlendis og varpaði fram spurningu hvort ekki væri hægt að hafa þetta hjá okkur. Marianne Klinke, hjúkrunarfræðingur flutti einnig erindi og tók í sama streng. Mættu nokkrir félagar Heilaheilla á þennan fund og fannst mikið til koma. Þessir fyrirlestrar, sem haldnir eru fyrir starfsfólk LSH, en er opinn öllum félögum Heilaheilla. Næsti fundur er á föstudaginn 20.10.2006 kl.14:00 á B2, 1. hæð. Mun Heilaheill vera með framlag á slíkum fundi 31.10.2006.