Sigurhátíð Heilaheilla

Formaður Heilaheilla, Þórir Steingrímsson, var boðaður á Sigurhátíð Glitnis í Háskólabíói fimmtudaginn 23. ágúst s.l. þar sem afhending áheita til góðgerðarfélaga eftir Reykjavíkurmaraþon Glitnis 2007 fór fram.  Veitti Þórir viðtöku úr hendi starfsmanns bankans, fjárframlagi að kr. 948.100,-, er safnaðist saman í maraþoninu.  Heilaheill var á meðal 15 efstu félaga, er einstaklingar hlupu fyrir og þeirra hefur verið getið á heimasíðunni.  Það var hvorki meira né minna en Guðrún Jónsdóttir, starfsmaður bankans, félagi og Glitnishetja Heilaheilla, er afhenti Þóri þessa fjárhæð á sviði Háskólabíós, en hún afrekaði [í hjólastól] ásamt manni sínum [er ýtti], stjórnarmanni Heilahella, Sigurði H Sigurðssyni, að hlaupa fullt maraþon, 42 km..  Kann Heilaheill þeim og Glitni miklar þakkir fyrir framtakið og þessir fjármunir koma í góðar þarfir.

Sjá myndir

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur