Hin árlega Leikhúsferð HEILAHEILLA var farin 15 mars á „Sólarlandaferð“ Guðmundar Steinssonar í Þjóðleikhúsinu, sem endaði með góðum kvöldverðiá veitingastaðnum DOMO, í boði félagsins. Þetta er hefð sem hefur skapast sem þakklætisvottur til þeirra er hafa lagt óeigingjarnt „kjarnastarf“ af höndum fyrir félagið. Formaðurinn, Þórir Steingrímsson, hélt tölu, þakkaði „kjarnanum“ fyrir þetta starfsár sem er að líða. Minnt var á fundi, máþing og ferðalög sem eru framundan og var hugur í mönnum. Sjá myndir hér!
Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.