
Laugardaginn 03.05.2008 var haldinn mánaðarlegur fundur með félagsmönnum og greindi formaðurinn, Þórir Steingrímsson, frá stöðu félagsins og um væntanlegan fund í HEILAHEILLARÁÐI. Þá sýndi RAX [Ragnar Guðni Axelsson] sem er í framvarðasveit HEILAHEILLA, nokkrar myndir er hann tók og þá athyglisverða kvikmynd um sig, eftir son sinn, Jón Znæ Ragnarsson. Efni erindis RAX og kvikmyndar sonarins sönnuðu að hver sá sem verður fyrir slagi, heilablæðingu eða blóðtappa í heila, á fullt erindi aftur út í atvinnulífið og getur afkastað miklu, eins og dæmin sanna.