Las “Slagorðið” rétt áður en slagið reið yfir!

Jón Ármann Héðinsson, fyrrverandi alþingismaður og “orkubolti”, hefur stundað sund og líkamsrækt með reglubundnum hætti sl. tugi ára. Hann var staddur snemma morguns í lok síðasta mánaðar í Kópavogssundlaug, er hann fann allt í einu aflið þverra í hægri hendi. Hann fór því uppúr og reyndi líkamsæfingar við íþróttagrindur, er þar voru,tók á þeim eins og hann hefur gert undanfarin ár, en þá var höndin mjög afllítil og fór því heim. Hringdi hann í dóttur sína, sem er læknir, er sendi hann strax á Bráðamóttökuna þar sen hann fékk viðeigandi bráðameðferð. Hældi hann starfsliði spítalans fyrir fumlausa meðferð og sagði allt þar til mikillar fyrirmyndar. Góðu heilli er hann allur “að koma til baka” og er farinn að stunda sund eftir mætti. Þrekið þarf að vinnast upp aftur. Sagði hann sundfélögum sínum frá þessu og að hann hafi lesið Slagorð, blað HEILAHEILLA, kvöldið áður en áfallið dundi yfir! Hafði hann því varann á sér, kannaðist við einkennin er þau komu komu fram og hafð því strax samband við dóttur sína. Forvarnarhlutverki blaðsins hefur þar með náð sínum tilgangi.

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur