Aðalfundi HEILAHEILLA lauk föstudaginn 6. júní.

Aðalfundi HEILAHEILLA lauk föstudaginn 6. júní og ný stjórn kosin.  Þórir Steingrímsson, formaður, bauð fundarmenn velkomna og lagði til að Tryggvi Friðjónsson yrði kosinn fundarstjóri og Gísli Ólafur Pétursson, fundarritari.  Var það samþykkt og tók Axel Jespersen, einn nefndarmanna “3ja-manna sáttarnefndar” til máls og fylgdi greinargerð nefndarinnar úr hlaði, sem er birt á heimasíðu félagsins.  Hann svaraði fyrirspurnum um efni hennar og eftir það var gengið til kosninga um 6 stjórnarmenn.  Stjórnina skipa þá Þórir Steingrímsson formaður, meðstjórnendur Kolbrún Sefánsdóttir, Gísli Ólafur Pétursson, Baldur Kristjánsson, Páll Árdal, Árni Bergmann Pétursson, Guðrún Torfhildur Gísladóttir og Þór Sigurðsson.

                  
Þórir    Kolbrún    Gísli Ólafur    Baldur    Páll    Árni    Guðrún    Þór

Um leið er nýrri stjórn óskað til hamingju og velfarnaðar í starfi, eru félagsmenn hvattir til að veita fulltingi sitt til að gera veg og vanda félagsins sem mestan og bestan, slagþolendum til eflingar í öllu landinu.

Markmið félagsins er að vinna að velferðar- og hagsmunamálum þeirra sem fengið hafa slag (heilablóðfall), aðstandenda þeirra svo og fagaðila.

Minnt er á að heimilisfang HEILAHEILLA er að Síðumúla 6, 108 Reykjavík og símanúmerin eru 561 2200 og 860 5585, heimasíðan www.heilaheill.is, á Facebook og YouTube, þar sem hægt er að sjá fræðsluerindi o.f.l. undir leitarorðinu “Heilaheill”.   Eru félagsmenn hvattir til að nýta sér þessa rafrænu félagsmiðlun til eflingar málstaðar félagsins sem er að finna í lögum þess.

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur