Formaður félags slagþolenda í Færeyjum, HEILAFÉLAGSINS, Bjarne Juul Petersen kom til landsins 10. júní s.l.. Hitti hann þar fyrir Þóri Steingrímsson, formann HEILAHEILLA og Pál Árdal, talsmann félagsins á Akureyri. Var tilgangurinn sá að kynna sér aðstæður er varðar bráðameðferð heilablóðfallssjúklinga, frumendurhæfingu og atvinnutengda endurhæfingu þeirra á Akureyri. Var megin tilgangur hans að afla upplýsinga í því skyni að slagþolendur í Færeyjum heimsæktu Akureyri á næsta ári. Taldi hann að samfélögin á Akureyri og Tórshavn væru að svipaðri stærð, hvað fólksfjölda varðar og vildi kynna sér hvaða þjónustu hver og einn fengi við slíkar aðstæður. Fyrst heimsótti hann endurhæfingastöðina Eflingu og ræddi þar við Stefán Ólafsson.
Síðan heimsótti hann Bjarg á Akureyri og ræddi þar við Þorsteinn Pétursson og Sigurlaugu Hafliðadóttur. Þá ræddi hann við Berg Þorra Benjamínsson, talsmann Sjálfsbjargar. Eftir það kynnti hann sér aðstæður á hótelum á Akureyri og hélt síðan á Kristnes og ræddi við Ingvar Þóroddsson, yfirlækni, sem kynnti Kristneshæli fyrir gestum. Hann var mjög hrifinn og fannst áhugavert hvernig þetta hefur verið unnið á Akureyri. Var í ráði að halda áfram frekara samstarfi um þessi mál á komandi tímum.