Góð stemning var á reglulegum þriðjudagsfundi HEILAHEILLA er nokkrir félagar HUGARFARS komu. Nokkrir hjúkrunarfræðinemar og kynntu að fyrir næstu helgi ætlar hjúkrunarfræðideild heilbrigðisvísindasviðs HÁSKÓLA ÍSLANDS vera með kynningardag, hjúkrunarfræðinema sem þeir kalla “Á krossgötum”, í Háskóla íslands föstudaginn 23. janúar kl. 11:40 -15:00 í Hjúkrunarfræðideild Eirbergi, 1. og 2. hæð. Fundarmönnum þótti þetta gott framtak og rómuðu framtakið. Þá kom fram að júkrunarfræðinemar á lokaári bjóða til kynningar á hinum ýmsum störfum hjúkrunaríræðinga. Nýjar og hefðbundnar hliðar á starfsvettvangi hjúkrunaríræðinga verða kynntar, til dæmis endurhæfingarhjúkrun, vökudeild, göngudeild hjartabilaðra, lífstíll, heilsugæsla, hundar í hjúkrunarmeðferð, hjálparstarf, bráðahjúkrun, skaðaminnkun o.s.frv.
Kynningin er liður í námskeiðinu “Hjúkrun” sem starfs- og fræðigrein þar sem hópar nemenda kynna starfstækifæri í hjúkrun bæði hér á landi og erlendis. Framhaldsnám í hjúkrunar og Ijósmóðurfræðum verður kynnt og fulltrúar heilbrigðisstofnana, m.a. embætti landlæknis og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kynna störf sín. Kaffisala nemenda verður frá kl. 11:30 til 13:00 til styrktar útskriftarferðinni í vor. Verð: 1500 kr. fyrir fullorðna, 1000 kr. fyrir 6-12 ára og frítt fyrir yngri en 6 ára. Kynningin er öllum opin. Allir sem vilja kynna sér nýjar hliðar á störfum hjúkrunarfræðinga eru hvattir til að koma. Er hvatt til að sem flestir nýti sér þetta framtak. | ||||