
Miðvikudaginn 18. janúar s.l. var haldinn fyrsti fundur meðal fulltrúum LSH og samstarfshóps taugasjúklinga, en í honum eru Félag MND – sjúklinga; Heilaheill; LAUF – Landssamtök áhugafólks um flogaveiki; MG – félag Íslands; MS – félag Íslands og Parkinsonsamtökin á Íslandi. Var fundurinn haldinn á taugadeild sjúkrahússins B2 í Fossvogi kl.17:00. Fjallað var um með hvaða hætti þetta samstarf ætti að fara fram og lögðu fundarmenn áherslu á að aðilar eigi samstarf með skipulegum hætti um mál sem varða skjólstæðinga félaganna og LSH. Þessi aðilar stefna að því að vinna saman að því að fræða almenning og sjúklinga og kynna viðkomandi sjúkdóma og einkenni þeirra sem víðast til að vinna gegn fordómum. Aðilar skiptust á upplýsingum og var lagður góður rómur að hversu vel tókst til, ekki síst um þann mikla og góðan áhuga starfsfólks LSH.