Ekki láta Akureyringar, norðurdeild HEILAHEILLA heimsfaraldinn hafa áhrif á sig, héldu sinn reglu-lega kaffifund, sem er mánaðarlega, annan mið-vikudag hvers mánaðar, 10. nóvember s.l. á Greif-anum og er öllum opinn. Þar er veittur kaffisopi og meðlæti, – þeim að kostnaðarlausu. Er þeim er hafa áhuga á slaginu, forvörnum, meðferð og endurhæfingu, velkomið að þiggja gott kaffi og með því! Þarna hafa gestir og gangandi tækifæri á að kynnast þeim er hafa reynt áfallið á eigin skinni og eru Norðlendingar hvattir til að nýta sér þetta og læra um helstu einkennum slagsins og hvernig eigi að bregðast við því.