Merkur fundur, – mikilvægi félagsins!

Undirritunin 2005
Undirritunin 2005

Merkur fundur var 15. janúar 2025 með fulltrúum HEILAHEILLA, Þóri Steingrímssyni formanni félagsins, Sædísi Þórðardóttur stjórnarmanni og Valgerði Sverrisdóttur félaga og verkefnahóps Landspítalans, þeim Margréti Evu Árnadóttur og Melkorku Jónsdóttur um að efla samskipti og samstarf milli aðila, – um upplifun slagsjúklinga og slagþola í heilbrigðiskerfinu.  Rætt var um með-höndlun, endurhæfingu og eftirfylgni og með hvaða hætti væri hægt að auka vitund almennings um heilablóðfallið og þátttöku heilbrigðisstarfs-fólks þar um.  Fyrir lá undirrituð viljayfirlýsing milli 6 formanna taugasjúklingafélaga (SAMTAUG), Félags MND – sjúklinga; Heilaheilla; LAUF – Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki; MG – félags Íslands; MS – félags Íslands; Parkinsonsamtakana og yfirstjórn Landspítalans frá árinu 2005, vottað af Jóni Kristjánssyni, þáverandi heilbrigðisráðherra.

SAMTAUG – Taugasjúklingafélög koma sér saman

Vísað var núna til þátttöku fulltrúa Íslands í samevrópsku átaki SAP-E , þar sem þau Dr. Marianne E. Klinke forstöðu-maður fræðasviðs í hjúkrun tauga- og taugaendurhæfinga-sjúklinga; Björn Logi Þórarinsson lyf- og taugalæknir og Þóri Steingrímssyni formaður HEILAHEILLA hafa myndað með sér hóp um að vera talsmenn (coordinators) eins og skipulag SAP-E mælir fyrir um.  Á fundinum var tekin ákvörðun um að hefja samstarf milli HEILAHEILLA og verkefnahópsins, um að leita til félaga er gæfu kost á sér í samstarf um að bæta heilbrigðisþjónustuna er varðar heilaslagið.  Var ákveðið að samstarfið byggðist á undirritaðri yfirlýsingu og eru slagþolar hvattir til að gefa kost á sér þegar þar að kemur.

Þóri Steingrímssyni formaður HEILAHEILLA, Dr. Marianne E. Klinke forstöðumaður fræða-sviðs í hjúkrun tauga- og taugaendurhæfingasjúklinga; Björn Logi Þórarinsson lyf- og taugalæknir

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur