Fyrsti reglulegi “Laugardagsfundur” HEILAHEILLA var haldinn 4. mars s.l. í endurnýjuðu fundarhúsnæði ÖBÍ, að Sigtúni 42, Reykjavík, þar sem Sindri Már Finnbogason, fyrrum framkvæmdastjóri miðasölufyrirtækisins TIX, flutti áhrifamikla ræðu. Þar fór hann yfir sína reynslu af slaginu og fannst fundarmönnum mikið til hans máls koma. Fannst honum að ríkisframlag til félagsins, væri ekki í samræmi við það sem önnur sjúklingafélög fengju. Voru sjónarmið hans áþekk þvíNý er aðrir fundarmenn höfðu fengið að reyna, t.d. um annmarka heilbrigðiskerfisins og hvað betur mætti fara. Þá tók formaðurinn Þórir Steingrímsson til máls og þakkaði Sindra fyrir hans framsögu. Greindi hann frá því hvar félagið stæði í samfélaginu, sem eina sjúklingafélag slagþolenda hér á landi, í samskiptum við innlenda sem erlendra aðila. Var ekki annað en að heyra, en að fundarmenn voru því sammála að HEILAHEILL væri á réttri leið með að vinna að betrumbót á heilbrigðiskerfinu, með samvinnu við ÖBÍ (www.obi.is); SAMTAUG (https://heilaheill.is/samtaug/); HHH-hópurinn (https://hjarta.is/um-okkur/) (www.heilaheill.is) (www.Hjartaheill.is); SAFE (Stroke Alliance For Europe); ESO (European Stroke Association); SAP-E (Stroke Action Plan Europe) UMSJÓNARMENN ( 2 national coordinators) hér á landi; (https://www.ssoft.info/); NAA (https://heilaheill.is/nordisk-afasirad/); NWC (https://nordicwelfare.org/). Fundarmenn fengu sér hressingu, kaffi og veitingar, á meðan fundinum stóð og mikill hugur í þeim er þeir héldu heim.