Á frétttavefnum Vísi var viðtal við Maríu Ósk Kjartansdóttur 26 ára Keflvíkinging er með séríslenskan erfðasjúkdóm sem hún lætur ekki buga sig. Móðir hennar og systir létust báðar úr þessum hræðilega sjúkdómi. Hún fer þetta á þrjóskunni eins og hún segir sjálf. María deildi sögu sinni með okkur og leggur sérstaka áherslu á að fram […]
Það er ekki á milli mála að þriðjudagsfundir HEILAHEILLA eru vinsælir meðal félagsmanna eins og myndirnar sýna. Það er mikill hugur í fólki og þau tengsl semeru á milli þeirra og þeirra sem eru núna í bráðameðferð á spítala, eru mikil. Með vikulegri viðveru á Taugadeild Landspítalans, þriðjudaga kl.14-16 og á Grensásdeild fimmtudaga kl.14-16, þá […]
Góður, skemmtilegur og fjölmennur „Laugardagsfundur HEILAHIELLA“ var haldinn í Síðumúla 6, Reykjavík. Eftir skýrslu formannsins var sýnd sjónvarpsupptaka af málþingi félagsins á Grand Hótel frá því í fyrra. Var það haldið í minningu Ingólfs Margeirssonar, rithöfundar, sagnfræðings og fjölmiðlamanns frá því í fyrra. Eftir það flutti dr. Ólöf Guðný Geirsdóttir næringarfræðingur fyrirlestur um hollt mataræði. […]
Nú er samstarf slagsjúklinga á Norðurlöndum að verða að veruleika og stjórnarmennirnir, Þórir Steingrímsson og Albert Páll Sigurðsson, sækja boðaða ráðstefnu í Osló 25-26 febrúar n.k., ásamt Velgerði Hermannsdóttur, hjúkrunarfræðingi, félag Hjartaheilla, í boði HEILAHEILLA. Er hér um að ræða undirbúningshóp innan SAFE [Stroke Alliance For Europe] . Hugmynd að þessu fæddist á málþingi/aðalfundi SAFE í Ljubljana, […]
Blóðþrýstingur var mældur á Slagdeginum á Akureyri og góð ráð gefin til þeirra sem þurftu þess við. Mikla athygli vakti málbandið sem öllum var gefið og lá sumum það mikið á að þeir mældu sig strax eða fengu hjálp við það. Vel var mætt og voru síst færri blóðþýstingsmældir en á seinasta ári. Þessi Slagdagur […]
Fundur HEILAHEILLA á Norðurlandi var haldinn þriðjudaginn 8. mars á veitingarhúsinu Greifanum. Góð mæting var og það var rætt um að fara í leikhús í mars og á að ræða það betur á næsta fundi, einnig var rætt um að fara í ferð næsta sumar, svipaða þeirri sem farin var síðasta sumar. Það komu fram góðar […]
Hinn þjóðkunni útvarpsmaður Guðni Már Henningsson ræddi við hinn þjóðkunna ljósmyndara RAX [RagnarGuðna Axelsson] á Rás 2, sunnudaginn 6. febrúar og er hægt að hlust á brot úr því viðtali hér á heimasíðunni undir hnappnum ÚTVARP HEILAHEILLA. RAX er félagi HEILAHEILL og ræðir hann í viðtalinu um slagið er hann fékk. Guðni Már hefur lagt […]
Aðventufundur HEILAHEILLA var vel sóttur 4. des 2010 og gaf formaður félagsins, Þórir Steingrímsson, skýrslu um starfsemi þess. Þá greindi hann einnig frá ferð á þing Stroke Alliance For Europe (SAFE) í Slóveníu, er hann og Sigurður H Sigurðarson sátu í boði þeirra samtaka. Þá voru sýndar myndir frá ferðinni, auk þess sem sýnd voru kvikmyndabrot ú […]
Laugardaginn 20. nóvember sl. hélt Grensásdeild opið hús fyrir gesti og gangandi og var fjölsótt. Kynnt voru húsakynni deildarinnar, þar á meðal æfingasalir, sundlaug, æfingaríbúð og sjúkrastofur. Eins var starfsfólkið til staðar til að leiðbeina og svara spurningum enda var tilgangurinn að kynna hvað deildin gerir og fyrir hverju hún stendur. Ýmislegt var á boðstolum […]
Um miðjan ágúst 2009 lögðu þeir Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, Ingólfur Margeirsson, fræðslufulltrúi félagsins, Birgir Henningsson og Guðni Már Henningsson, drög að „Vef-Útvarpi HEILAHEILLA“ á heimasíðu þess. Nú er hægt að hlusta á ýmsan fróðleik um slagið, m.a. í viðtalsþáttum við sjúklingana, aðstandendur og fagaðila. Þá er einnig hægt að hlýða á upplestur ljóða og […]