Merkur fjarfundur var 1. mars með framkvæmdastjóra SAP-E, (Stroke Action Plan for Europe), prófessor Hanne Krarup Christ-ensen, yfirlækni, lyf- og tauga-sérfræðingi á taugadeildum sjúkrahúsanna í Bispebjerg og Frederiksberg, Danmörku og Þóri Steingrímssyni, formaður HEILAHEILLA; Birni Loga Þórarins-syni, lyf- og taugasérfræðingi á Landspítalanum og Dr. Marianne E. Klinke forstöðumanni fræðasviðs í hjúkrun tauga- og taugaendurhæfingasjúklinga. Þetta var sér í lagi “one-on-one” fundur um slagið á Íslandi og HEILAHELL er, enn sem komið er, eini formlegi aðilinn að SAP-E. Þórir þakkaði Hanne fyrir þennan fund og útskýrði fyrir fundarmönnum stöðuna. Hanne lagði fyrir þau Björn og Marianne margar staðlaðar spurningar, svo hún gæti betur áttað sig á stöðu heilablóðfalls-sjúklinga og meðferð þeirra hér á landi, – miðað við það sem gerist í öðrum löndum Evrópu. Svöruðu þau henni greiðlega og gerðu stöðu þeirra mála hér á landi mjög glögg skil. Hvatti Hanne m.a. til þess að fagaðilar hér á landi mynduðu með sér formleg samtök um heilablóðfallið, svo þau gætu átt auðveldara með að fylgja SAP-E áætlunninni eftir gagnvart stjórnvöldum og myndu aðilar innan SAP-E -, ESO (European Stroke Association) og SAFE (Stroke Alliance For Europe) veita stuðning eftir mætti, – jafnvel senda fulltrúa samtakanna til Íslands, ef þau fengju boð þar um.