TÖKUM TIL MÁLS í haust!

Málstolshópur HEILAHEILLA “TÖKUM TIL MÁLS” kom sér saman, ásamt aðstandendum á ánægjulegri “lokaæfingu” að vori, á vænum veitingastað laugardaginn 17. maí s.l. og naut góðs hádegisverðar.  Er þetta annað árið sem þetta átak hefur verið innan félagsins og hefur þjálfunin farið fram í aðstöðu þess í Mannréttindahúsi ÖBÍ, Sigtúni 42, Reykjavík.  Hafa talmeina-fræðingarnir dr. Helga Thors og Þórunn Hanna Halldórsdóttir M.Sc., aðjúnkt í Háskóla Íslands, nú teymisstjóri hjá Kjarki, endurhæfingu, stýrt þessari þjálfun með vænlegum árangri.  Þóri Steingrímssyni, formanni HEILAHEILLA, var boðið sérstaklega á þessa æfingu og í ráði er að halda þessari þjálfun áfram að hausti komanda og er opin öllum, – hvort sem málstolið er vegna slagsins eða utanaðkomandi áverka.  Þeir sem telja sig geta notið góðs af þessari þjálfun geta haft samband í síma 860 5585 eða netfangið heilaheill@heill.is.

     

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur