Fyrir dyrum stendur til að félagið HEILAHEILL taki þátt í sameiginlegri aðgerðaráætlun SAP-E, (Stroke Action Plan for Europe), þar sem fagaðilar og sjúklingar í Evrópu taka höndum saman er varðar heilablóðfallið, byggt á undirrituðu samkomulagi er samtökin ESO (European Stroke Association) og SAFE (Stroke Alliance For Europe) gerðu með sér 2018, þar sem gert er ráð fyrir að hvert land fyrir sig innan samtakanna vinni að ákveðnum markmiðum er varðar heilablóðfallið. Með þessu samkomulagi er HEILAHEILL eini formlegi aðilinn að SAP-E og er þegar hafin samvinna við fagaðila hér á landi um að hér verði sérstakur hópur fagaðila á landsvísu um slagið. Nú er komið að okkur félögum HEILAHEILLA að vekja athygli almennings á heilablóðfallinu og á evrópska slagdeginum 11. maí n.k.. Jafnframt hefur verið gott og náið samstarf milli HEILAHEILLA og áhugasamra fagaðila innan heilbrigðisþjónustunnar um land allt, um að sameinast um evrópska markmiðið er felst í erindi framkvædastjórnar SAP-E til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, þar sem íslensk heilbrigðisyfirvöld eru hvött til undirrita yfirlýsingu um markmið þessa samstarfs, er HEILAHEILL stendur fyrir.